Breyting á ættarmóti

2. júní 2010

Kæru ættingjar

Þar sem skráning á ættarmótið var mjög lítil fellur hefðbundna ættarmótið niður og hefur ættarmótsnefndin ákveðið að hætta við að leigja félagsheimilið á Skagaströnd. (gerðum ráð fyrir 40-50 fullorðnum en ekki nema 25 skráðu sig)

Við sem erum í nefndini höfum hinsvegar ákveðið að hittast samt sem áður á tjaldsvæðinu Skagaströnd helgina 25-27 júní og allir velkomnir að vera með.

Það verður engin skipulögð dagskrá (við skipuleggjum okkur bara eftir því hvað margir mæta)

Gama væri að skapa smá stemningu á laugadagskvöldinu með því að borða saman. Allir koma með veitingar fyrir sig og sína.   

Þeir sem hafa greitt gjaldið fá endurgreitt á næstu dögum.

Kv. Steinn

s. 825-7779

Oddný Gestdóttir og Guðjóns Jóhannessonar 

Oddný Gestsdóttir ólst upp hjá presthjónunum Guðmundi og Guðrúnu á Melstað í Miðfirðin en Guðjón er frá Fitjum í Fitjadal.  Þau hefja búskap á Stóra - Ósi, þaðan að Ásbúðum á Skaga og þaðan aðVindhæli í  Vindhælishrepp.  Síðustu árin bjuggu þau á Háagerði rétt utan við Skagaströnd.  Eftir nokkura ára búskap þar lést Guðjón.  Halgrímur sonur þeirra tók þá við búi með Oddnýju móður sinni.  Síðar byggðu þau hús á Skagaströnd sem Oddný lét heita Melstað eins og æskuheimili sitt.  Einnig bjó þar með þeim dóttir Oddnýjar Þuríður.  Oddný lést á Melstað rúmlega 90 ára.  Vænt hefur Oddnýju þótt um fósturforeldar sína og átt frá æskuheimili sínu góðar minningar því varla hefði hún skírt fyrstu tvö börnin sín eftir þeim og síðasta heimili sitt Melstað ef svo væri ekki.

 Guðjón og Oddný eignuðust níu börn og sjö komust upp þau voru: Guðmundur, Guðrún, Hallgrímur, Jóhannes, Guðbjörg, Þuríður og Guðjón.